Ég heiti Tristan Jóhannes og þetta er heimasíðan mín
Nýorðinn 5 ára :)


Um mig:
Ég kom í heiminn eftir dásamlega meðgöngu, þann 28. desember 2004 kl. 00.36. Ég var rúmar 18 merkur og 54 sentímetrar, með mikið af glansandi dökkum lokkum og stór, dökkblá augu.

Pabbi minn heitir Hallvarður Ásgeirsson og mamma mín heitir Heiða Dögg Liljudóttir.

Fyrstu myndirnar af mér eru á heimasíðu sem pabbi minn bjó til, en það eru engar myndir af mömmu því hún þurfti að dveljast á gjörgæslu um nóttina og gat þess vegna ekki verið með okkur. En við höfðum það ósköp notalegt fyrir því eins og sjá má hérna.

Lilypie Kids Birthday tickers




Annað:

Því að þú hefir myndað nýru mín, ofið mig í móðurlífi.
Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður,
undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel.
Beinin í mér voru þér eigi hulin, þegar ég var gjörður í leyni,
myndaður í djúpum jarðar.
Augu þín sáu mig, er ég enn var ómyndað efni,
ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína,
áður en nokkur þeirra var til orðinn.



Sálmur 139:13-16





Fyrir mæður drengja!!!



Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit. Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi. Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá, fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá. Drengur er Sannleikur með óhreinindi í andlitinu, Viska með tuggugúmmí í hárinu og Von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum.

Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra. Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar, viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað til, hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi.

Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn (í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla, laugardagsmorgna og brunabíla.

Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma.

Enginn er eins árrisull, og enginn eins síðbúinn til matar og hann.

Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu, og dularfullu áhaldi, sem enginn þekkir nema hann.

Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur rekið hann burtu úr skrifstofunni þinn, en þú getur ekki rekið hann burtu úr huga þér.

Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra - freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveim töfraorðum -

"Halló mamma!"


Frænkur, frændur og vinir:

Martha María frænka

Alexander Vilmar frændi

Matthías Hjörtur Mörtuson ofurdúlla